Hlaup hlaup hlaup....
10. október 2006 klukkan 22:43
Usss hvað er nice að fara út að hlaupa.... ég er að reyna stefna að gera þetta á hverjum degi, gengur það? Já áfram svo Jenný!!!
Svo langar mig svo að prófa að hreinsa líkama minn alveg frá öllum viðbjóði.. en ég er ekki alveg komin á það skref... NUNA geri ég þetta!! Ég má ekki drekka Kaffi... Jenný fær hausverk um hádegi ef hún er ekki búin að fá kaffið sitt. Hversu sjúkt er þetta.. þetta er eigilega aðal ástæðan fyrir að ég gerir þetta ekki. Áfengið get ég nú alveg sleppt!! En svo er ég líka hrædd um að það má ekki vera of mikið stress hjá manni þegar maður gerir þetta. Maður mundi líklega fara yfirum..... ekki gott!!
Svo ætlaði ég mér að gera þetta í fríinu mínu sem byrjar á föstudaginn... en nei ég er búin að lofa nokkrum stelpum að bjóða þeim í mat... ekki get ég bara eldað fyrir þær og ég drekki bara einhvern djús:/ frekar súrt...
Held að málið sé að bíða með þetta, eða hvað?? á að drulla mér í gegnum þetta?? Þetta er vika!!!
Annars kom Pabbi hérna á sunnudaginn.... og vá hvað það var æðislegt að fá að vera með honum. Mér þótti svo vænt um það og geri það enn:) Við fórum út að borða saman og svo sátum við bara og spjölluðum.. Ekki oft sem maður er með Pabbaling.
Svo var ég svo heppin að hitta hann líka smá í gær... fórum saman í bilka og svona stemmari:) Núna er hann sveittur í Álaborg að vinna. Væri gaman að hitta hann einu sinni enn áður en hann fer, kemur í ljós!
En það er líka allt í góð því Pabbi, Sólveig og Thea mín koma 3. nóv:) Það er bara eftir nokkra daga!!! Það verður BEST!!! Knúsa litlu dúlluna mína sem er mesta gull í heiminum get ég sagt ykkur, ekki hægt að eiga yndislegri systur:)
jæja ég er farinn í skólan aftur....
HEJHEJ
Ég er svo góð manneskja..,
06. október 2006 klukkan 01:20
Skilaði "skitseforslag" í dag, sem er fyrsta hugmynd af husinu mínu góða! Ég hefði verið til í að vera með suma hluti meira á hreinu. En þar sem við fengum bara 3 daga þá komst ég eins langt og ég komst... og núna þarf ég bara að vera dugleg svo ég verði sátt við þetta!!
Ég er svo góð manneskja.... Eldaði áðan fyrir mig og Ulrike og fór með matinn niður í skóla til hennar. Því hún á að skila á morgun og þarf að vinna lengi!! Já ég er sko hugulsöm:)
Pabbi kemur svo á sunnudaginn... Mikið hlakka ég til að sýna pabba hvað ég er að gera hérna. Sýna honum hvar ég bý og hvar skólinn minn er. Verður alveg yndislegt að eyða smá tíma með honum.
Jæja núna ætlar Jenný eða "lille my" eins og ég er kölluð í skólanum, eða Miss J eða Jenny from the block og líka stundum minny. Rosalega er ég búin að eiga mörg gælunöfn gegnum tíðina... rifja upp:
- Benny (úr barnaskóla hérna í Danmörku..)
- Kravits (árbæjarskóla)
- Jens (árbæjarskóla)
- J-lo
- Jennsína Páls (addý frænka)
- Jenný litla (fjölskyldan, erum svo margar Jenný)
- Lille my
- Minny
- miss J
- Jenny from the block
- Gunnar (pelle)
Er ég að gleyma einhverju??
Tómt tómt....
02. október 2006 klukkan 22:22
Sígó og Ingirún er búin að vera í danaveldinu.. eins og Arna mín kallar þau. Rétt og sagt Sigrún Helga og Ingó komu hingað alla leið til að heimsækja mig og það var nú ÆÐISLEGT í alla staði. Sérstaklega þar sem ég gat verið með þeim frá fimmtudegi til mánudagsmorgun:) Það var nú frekar leiðinlegt að kveðja þau... sit núna í frekar tómri íbúð. Horfi á vindsængina sem þau sváfu á og hugsa "vildi að þau væru hérna ennþá".
Smá helgar saga:
Fimmtudaginn:
Fór ég til Köben með bekknum mínum klukkan 5.30 um morguninn, við vorum að skoða hús allan daginn. Skemmtum við okkur ansi vel að fara inn og út úr rútunni allan dagin, inn og út úr húsum allan daginn... Ef að skemmtilegu bekkjarfélagar mínir væri ekki þarna væri þetta ekki eins gaman:) Má þakka ilmvatnarsögunni hans Jakobs, æskunni hans Anders, sögum frá Helle og ekki síst Ulrike sem er yndisleg!!
Hitti svo Sigrúnu og Ingó um kvöldið og spjallaði við þau... við vorum þreytt og fórum bara heim að sofa:) Þau búin að vera í búðum allan daginn!!
Föstudaginn:
Vaknaði snemma til þess að skoða fleiri hús og já miklu skemmtilegri hús... Nefnilega nýju flottu húsin á Islandsbrygge... ég var eins og lítill krakki sem hafði fengið allt of mikið nammi:) Svona er maður víst þegar maður hefur gríðan áhuga á einhverju:)
Svo fór bekkurinn heim með rútunni en ég fór og hitt Sigrúnu og Ingó á strikinu. Við röltum aðeins um bæinn, fórum svo upp á hótel og tókum okkur til fyrir kvöldið.
Jensens buffhus var fyrir valinu sem matsölustaður kvöldsins. Hjalti kom einnig með okkur. Við fengum gríða góðan mat... mmmmm:) Svo var bærinn tekinn á þetta. Þetta var nú frekar slök bæjarferð vegna þreytu. En brandararnir stóðu upp úr hvort sem það kom frá mér eða Sigrúnu... við eru líka svo fyndnar:)
Laugardagurinn:
Tókum lesti til Arhus klukkan 11...
Fórum út í búð og keyptum í matinn...
Fórum á Select og keyptum pulsu, ís og nammi aðþví það var nammidagur.
Leigðum hjól...
Hjóluðum um bæinn...
Ég sýndi þeim skólann minn
Elduðum ýkt góðan mat...
Fengum okkur bjór og staup...
Hlóum mikið...
Ingó varð fullur...
Við töluðum við örnu á skype....
Sunnudagurinn...
Hjóluðum og keyptum bakarísmat og settumst í garð og borðuðum og sóluðum okkur.... :) sweet
Hjóluðum niður á strönd...
Hjóluðum aftur í bæinn...
Sigrún fékk að fara í HogM..
Fórum á kaffihús...
Skoðuðum stóra strákinn..
Ingó fékk að prenta út...
Hjóluðum heim...
Fórum út að borða á Grappa, ítalskur staður.... VÁ ÞAÐ VAR SVO GOTT... takk fyrir mig!!
Keyptum ís..
Kósí kvöld með kertaljós...
"Ingó tapaði fótboltaleiknum"
Þetta var frábær frábær frábær helgi í alla staði, ekkert smá gaman að fá þau til mín:) Hlakka til að næsti kemur:) Ég er búin að fatta mig, ég elska að fá gesti:) "KODDU Í HEIMSÓKN"
Jæja núna er ég búin að borða kvöldmat og búin að fara út að hlaupa og núna er ég tilbúin að fara aftur í skólan:)
TAKK FYRIR ALLT SIGRÚN MÍN... LOVE YOU!! takk líka Ingó... þú ert æði!!
- Ingó tók mynd af mér hjóla:) rassinn minn er flottur...
rassar...
27. september 2006 klukkan 23:48
Ég var að hjóla í skólanum í morgun og það var mjög ósmekklegur rass að hjóla fyrir framan mig ... ég hugsaði með mér... "vonandi er ég með flottan rass þegar ég er að hjóla":) Hvernig á ég að komast að því.. ekki sé ég rassinn minn.
Millskil í dag... bara nokkuð sátt:) Fékk frá samnemendum mínum, þ.e.a.s. þeir sem eru með mér í kennarahóp, "við erum bara orðlaus" þegar ég spurði hvort það væru einhverjar spurningar. Verðlaunaði sjálfan mig með því að kaupa 2 karlahlýraboli á 30 kall í HogM þar sem allir mínir eru orðnir vel sjúskaðir og ljótir og einnig svitalyktaeyðir. Hehe.. djöfull er ég góð við mig, þetta er bara luxus!!
Annars er það kóngsins köbenhavn í nótt... að skoða fullt af einbýlishúsum...:) hlakka svo til:) Og ekki má gleyma Sigrúnu og Ingó.. ÞAU ERU AÐ KOMA!! Fyrstu vinirnir í heimsókn frá íslandi. Ég er að spá í að ramma þau bara upp á vegg, þá verða þau alltaf hjá mér.
Og Theodóra mín... ég sakna þín!! Þú verður að fara hringja í Jenný, spurðu mömmu og pabba:) Ertu ekki annars byrjuð að lesa??
Davíð bestasti vinur í heimi á afmæli í dag... til hamingju sæti strákur:) Langar að vera hjá þér og ykkur... kem bráðum:)
Jæja best að fara henda einhverju í tösku, þrífa fyrir dúllurnar mínar:) Heyrumst .....
Smá spurning: Prumpa stelpur?? En kúka??
Sunnudagur er til sælu....
24. september 2006 klukkan 15:51
Jæja þá er komin einn annar sunnudagurinn..... Sól og blíða út og ég vaknaði og var að kafna úr hita!!
Ég var að velta fyrir mér í gær hvað sumt fólk er "STUPID" i umferðinni.. sá nefnilega eldri mann vera stopp á miðjum ljósunum og hann vissi greinilega ekkert hvað hann átti að gera því það var komið rautt á hann. Allir að flauta á hann... Afhverju að fara ekki bara beint áfram??
Lífið er alltaf jafn gott hérna.. I gær skelti ég mér í Ikea og keypti labbir á borðið mitt, núna er ég loksins komin með eldhúsborð og get boðið ykkur öllum í mat:) Júbbbíí.... Svo þreif ég allt hérna og þvoði föt:) Tók mér alveg frí frá skólanum í gær, sem er nauðsýnlegt að gera stundum:)
Svo var fyrsta "partýið" hérna í gær. Soffía, Þóra, Árný, Halla og Ragna komu og við spjölluðum og borðuðum osta og vinber, voðalega kósí:) Skelltum okkur svo í bæinn og auðvitað var "glamour" á okkur... fórum á Herra Bartels sem er staður þar sem bara coktaila. Svo var skelt sér á Römer og dansað.. dansað ...dansað....
Mér finnst svo gaman að dansa... gæti gert það allan sólarhringinn:) Þ.a.s. ef tónlistin er góð!!
Síðasta vika var skóli skóli skóli og svo fékk ég leyni heimsókn, sem var alveg frábært:) Hjálpaði mikið að koma smá róli á allt sem er að snúast í hausnum mínum. En það þarf samt að taka meira til í honum:)
Fór út að borða sushi.... vá hvað ég elska sushi... sushi og hvítvín er bara best í heimi:) mmmm... langar í sushi núna!! hver vill koma með mér?
Ég skilaði prógrami í síðustu viku... og gekk það bara rosalega vel:) Svo er ég að fara skila koncepti á miðvikudaginn... þetta er allt á góðu róli finnst mér:) mikið að gera, en þannig drífst ég best!
Svo er SIGRÚN OG INGÓ að koma á fimmtudaginn... vá það verður svo gaman að fá þau og mesta snilldin er að ég fer til köben 28, daginn sem þau koma... þá ég get líka verið með þeim þar:) Það er svo gaman að fá gesti:) hlakka svo mikið til....
Jæja ég ætla fara læra!! Hafðu það gott í dag....miss you
fréttir af mér...
16. september 2006 klukkan 12:29
Hæbbs...
Ég fór út að hlaupa í fyrradag í sólinni...vá hvað það var gott!! það hreinsaðist einhvern veginn allt. Planið að að koma upp rútínu að hreyfa sig á hverjum degi... til að dreifa aðeins huganum:) Maður má heldur ekki gleyma að hugsa um sjálfan sig og líkama sinn.
Smá stress er komið í skólan. Eigum að skila programi á morgun. Eins og alltaf er ég dugleg að gera lokaútkomuna á síðustu klukkutímunum. Ég er svo ýkt ánægð að skólinn sé komin á fullt, það er svo yndislegt og kósí að sitja þarna á kvöldin.. Maður er ekki bara að vinna eins og hestur, maður er líka að spjalla og hafa það kósí:)
Svo erum við komin á nýjan stað í skólanum og teiknisalurinn okkar er á efstu hæð, undir súð:) Þið sem þekkið mig vel vitið hvað mér finnst undir súð kósí og notarlegt. Helle vinkona mín sem sat ská á móti mér í fýrra situr núna við hliðina á mér og svo Mads og Julia á móti mér.
Mér líst ekkert smá vel á þessa önn.....:)
Í gær borðaði ég með soffíu, kjúlla og hrísgrjón og auðvitað vorum við fancy á því og fengum okkur hvítvínsglas með:) Svo fór ég bara upp í skóla og vann til miðnættist.
Er einmitt á leiðinni þangað núna því ég ætla að eiga fríkvöld í kvöld, það er nefnilega matur og smá teiti hjá Soffíu, Árný og Þóru i tilefni að því að Kiddi hennar Þóru er í heimsókn.
íbúðinn er ennþá í smá rústi... allt fer þetta að koma eftir mánudaginn, vona ég:)
Ég ætla að drífa mig í sturtu og hendast í skólan, hafiði það gott um helgina:)
KNUS:*:*:*
Hvað er gott heimili???
07. september 2006 klukkan 23:22
Þá er fyrsta verkefni annarinnar komið afstað... Við eigum að gera svokallaða "basisbolig" s.s. hús sem á að allar fjölskyldur eiga að getað notað. Ekki bara fyrir 5 manna fjölskyldu í árbænum. Bæði ungt fólk og gammalt. Kannski með örðum orðum að húsið verður ekki hannað fyrir ákveðna fjölskyldu.
Mig langar svolítið að biðja ykkur um að hjálpa til. Hvort þið gætuð skrifað nokkur orð um hvað ykkur finnst mikilvægt við heimili? Hvað er það sem býr til gott heimili?
Það er nefnilega ótrúlega gott að sjónarmið frá öðrum en bara mér.
Annars er ekki mikið annað að ske nema ég er að reyna koma mér fyrir og reyna finna réttu hlutina fyrir íbúðina... Gengur ekkert svo vel, en kemur allt sama..... á endanu!
Endilega skrifið nokkur orð, hvað ykkur finnst um gott heimili:) Takk takk takk
In da aarhus.... ljúft líf!!!
03. september 2006 klukkan 22:12
Loksins læt ég heyra í mér... Ég var eitthvað lengi að fatta þetta internet hérna, tæknin ekki alltaf að leika við mér...:) Ég bjóst bara við að tæknin væri orðin svona tæknileg að innbyggt væri bara þráðlaust net í veggjunum eða eitthvað og var ekki alveg að skilja afhverju þetta var ekki að virka. Þá sagði Hjalti mér að það þurfti örugglega snúru og AUÐVITAÐ var það málið:) Árný lanaði mér þvílíkt langa snúru... gæti örugglega farið út um allt með tölvuna en samt tengd heim:)
Ég mætti til Danaveldisins síðasta miðvikudag og ákvað að fara bara beint til Aarhus...var ekki að nenna að stoppa með allt draslið mitt. Gisti svo hjá Ulrike og Palla miðvikudagsnóttina.
Sótti lyklana snemma á fimmtudagsmorgunin og er íbúðin bara mjög fín og sæt... Mér á nú eftir að líða mjög vel hérna. Maður er enga stund út í búð og enga stund down town... svona er æðislegt að búa niðri í bæ:) Þetta á eftir að vera voðalega nice og gott....
Ég hlakka bara til þegar maður er búin að koma sér almennilega fyrir og svona... Þetta er frekar tómt núna. En ég þarf bara að þola það í nokkra daga í viðbót:)
Svo var ég að stussast eitthvað, fór svo í mat til ulrike og Palla.... fekk rosa gott lambakjöt:)
Skólinn byrjaði á föstudaginn..Fyrst var kynnt fyrir okkur hverning árið byggist upp. Ég byrja s.s. á Arkítektonisk Design og er teiknisalurinn minn í sama húsi og í fyrra en bara alveg efst upp... allt undir súð, mjög kósí:)
Svo byrjaði workshop um teambuilding, sem verður líka á mánudaginn og þriðjudaginn. Svona til að hrista hópinn saman.
Ég er alveg ótrúlega spennt að byrja á þessu öllu saman... ég hlakka ekkert smá til:)
Annars er bara crazy um að vera hérna, byrjaði "festuge" á föstudaginn og verður fram yfir næstu helgi.... fullt af tónleikum og mikið um að vera:) svaka stemming...
Fór í afmæli til Önnu vinkonu minnar í gær og fór svo í partý heim til mads úr bekknum mínum og svo niður í bæ og við dönsuðum og dönsuðum....
Jæja ég nenni ekki að blabbla meira......
Hvernig hafið þið það???
Sólarhringur í brottför....
29. ágúst 2006 klukkan 15:32
Eftir sólarhring verð leggja afstað út á flugvöll... ég er bara ekki að trúa þessu að sumarið sé bara búið!! Skólinn byrjar á föstudaginn og allt að ske... allt í einu er bara komið að þessu.
Ingibjörg mín fór í gær:/ Ekki var nú auðvelt að segja bless við hana, en ég veit að ég á eftir að hitta hana... við erum nú bára í Evrópu:)
Ég ætla drífa mig í að pakka og svo stussast.... Endileg hafðu samband ef þú vilt kveðja Jennsínu Páls:)
Þangað til næst í DK...
KNÚS
Ingibjörg mín fór í gær:/ Ekki var nú auðvelt að segja bless við hana, en ég veit að ég á eftir að hitta hana... við erum nú bára í Evrópu:)
Ég ætla drífa mig í að pakka og svo stussast.... Endileg hafðu samband ef þú vilt kveðja Jennsínu Páls:)
Þangað til næst í DK...
KNÚS
Kveðjupartý!!!
24. ágúst 2006 klukkan 18:03
Nú fer þetta sumar alveg að líða á enda, ekki nema 6 dagar í "heimför"... og stressið fer að magnast í maganum af einhverjum ástæðum. En samt hlakka ég ótrúlega til að byrja í skólanum:)
Ég er eigilega alveg komin með nóg að vinna.... Langar helst að njóta þess að vera með vinum og fjölskyldu síðustu dagana. En ég klára nú þessa viku og kannski verð ég mánudaginn líka, langar svo að geta klárað það sem ég er að gera... Ég er kannski aðeins of bjartsýn á það! Betra en að vera svartsýn.....
Ég er búin að eiga alveg frábært sumar, búin að kynnast bestustu vinkonum í heimi ennþá betur. Ég hef reyndar mjög lítið vera heima, vona bara að þau heima skilji það:) *blikk*
Ég er nú bara hérna heima í hádegismat og ég ætla bara að minna ykkur öll á kveðjupartýið á föstudaginn klukkan 21.... Þú veist hvert þú átt að mæta annars enda ég þig:) hehehe
Sjáumst á föstudaginn.... Mig langar í nóg af kveðjuknúsum!!!
Ég er eigilega alveg komin með nóg að vinna.... Langar helst að njóta þess að vera með vinum og fjölskyldu síðustu dagana. En ég klára nú þessa viku og kannski verð ég mánudaginn líka, langar svo að geta klárað það sem ég er að gera... Ég er kannski aðeins of bjartsýn á það! Betra en að vera svartsýn.....
Ég er búin að eiga alveg frábært sumar, búin að kynnast bestustu vinkonum í heimi ennþá betur. Ég hef reyndar mjög lítið vera heima, vona bara að þau heima skilji það:) *blikk*
Ég er nú bara hérna heima í hádegismat og ég ætla bara að minna ykkur öll á kveðjupartýið á föstudaginn klukkan 21.... Þú veist hvert þú átt að mæta annars enda ég þig:) hehehe
Sjáumst á föstudaginn.... Mig langar í nóg af kveðjuknúsum!!!
