GLEÐILEG JÓL....

Síðasta færsla var um Feneyja, og svo datt ég inn á þessar myndir.... hefði nú ekki verið sami stemmarinn að vera í Feneyjum ef allt hefði verið undir vatni:)
Elsku vinir og fjölskylda gleðileg jól.....
Heima er ég búin að vera síðan 22. des og er þetta yndislegt! Mér finnst alveg magnað að vera heima hjá Pabba og co... slökun út í eitt:) nice....

Litlu jólin í álfheimum voru ÆÐI!! Ekki er slæmt að koma til íslands og fara strax í 17 manna vinkonuboð... og bara spjalla og spjalla!! ;)
Þorláksmessa..... síðustu jólagjöfunum reddað! Kósíkvöld hjá Steinu, David og Líf.... Líf er bara mest yndi í heiminum!

Aðfangadagur var svo æði.... kósí, góður matur, fallegt jólatrét, flottar gjafir og yndislegt fólk!!
Svo er það bara jólaboð jólaboð jólaboð..... sem sagt borða borða borða..... :)
Jólaboð í kvöld og svo jólaskrall...... margt í boði..... hmmmm......

must verður að kíkja á prikið.... verð að hitta hana Margréti mína!

Svo tala stelpurnar um steed lord..... og það væri nú ekki leiðinlegt...:)
Jæja hoppa í sturtu......
Gleðileg jól elsku fólk......kossar og knús:*
Feneyjar.....
Fórum á fimmtudegi og vorum til Sunnudags, vinnan mín er besti vinnustaður sem ég hef nokkurn tíman verið á. Mér finnst alltaf gaman og hlakka alltaf til að mæta í vinnunna. Auðvitað koma erfiðir tímar... og maður er mis hress, eins og akkúrat núna! Alveg á hausnum ofan í deiliteikningum.... sem eru teikingarnar sem smiðirnir fá. Það fer líka að koma að því að það byri að byggja þennan garð okkar, sem verður í Vanlöse, sem er hérna í köben. Það verður nú mjög fyndið þegar ég verð orðin eldri kona með barnabörnin köben - "jæja börnin mín þetta teiknaði amma ykkar" ......
En aftur til Feneyja..... Við fórum s.s. til að skoða arkítektarheimssýningu sem er alltaf á örðu hverju ári. Bienalen heitir hún. Ekkert smá áhugavert... t.d. þetta myndband sem mér finnst ÆÐISLEGT..... ég gæti horft á þetta aftur og aftur.... mjög fallegt...
Svo tók ég 600 myndir, hendi einhverjum hérna inn þegar ég drulla mér í að taka þær út af myndavélinni. Þannig er það nú að ég þarf eigilega að sækja snúru hjá Ingibjörgu en ég er ekki beint búin að gera það ennþá og heldur ekki búin að skila myndavélinni hennar..... sorry girl!!! :)
Feneyjar voru æði og ég mæli með staðnum.... GEÐVEIKUR matur!! mm...... og húsin þarna... göturnar.... ótrúlegt....
Ég var alveg 2 daga að jafna mig þegar ég kom heim.... mér fannst ég alltaf endalaust vera á sjó... mjög fyndið. Ég hélt fyrst ég væri að verða eitthvað veik... en nei.... við vorum öll svona!!
Fyrir utan feneyja.. erum við byrjuð að skipuleggja julefrokostinn i vinnunni, held það verði nú meiri snilldinn....:) Svo erum við að fara í einhver ný verkefni, sem verða mjög spennó held ég.
Sumarhúsið gengur og gengur......mér finnst þetta allt að koma, en þetta er nú ekki einfalt. En þetta verður mjög fallegt sumarhús. Ég hlakka til að heyra hvað eigendunum finnst...:)
Svo þýðir ekkert að láta veturinn hafa áhrif á sig... vindur, myrkur, rigning og snjór..... bara jákvætt:) maður finnur nú samt alveg fyrir að þetta hefur smá áhrif á mann..... en maður verður bara að hrista það af sér. Annars er þetta helvíti leiðinlegt líf.....
áskorun







nýtt nýtt nýtt nýtt.......
lífið er bara ansi gott í stórborginni, síðustu dagar eru búnir að vera fullbókaðir og mikið um að vera!
Skiluðum 2 samkeppnum í vinnunni á föstudaginn, ótrúlegt hvað við náðum að gera mikið á stuttum tíma! Ég mundi segja að ég sé orðin skemmtiatriði í hvert skiptið sem við þurfum að vinna eitthvað lengi! Við vorum um daginn að ræða um fyrirbura, einn sem er að vinna með okkar var að eignast frænda sem var fyrirburi! Jenný er auðvitað með reynslusögurnar sína og fer að segja frá að hún sé fædd 2 mánuðum fyrir tíma og þegar hún fæddist var hún með hár á bakinu og blablabla... og einhvern veginn dettur setning út úr mér "Og ég er meira segja ennþá með hár á bakinu" - ég er svo sjarmerandi..... eina stelpan og loðin á bakinu! Stundum koma hlutirnir bara ekki rétt út.....
Fyrsta vikan....

´
íbúðin.....

herbergið mitt....






herbergið hennar kathrine....
SVAKA STUÐ... túlílú.....
Fyrsti vinnudagurinn....
Við erum 3 nemar - ég, Andreas (frá köben skólanum) og Chris frá berlín og svo eru eigendurnir Anders og Mads! Allt top gaurar.....
Dagurinn í dag fór í að snúa allri stofunni á hvolf og breyta til!! Allt þrifið og gert klárt....
eitt af verkefnum dagsins var að kaupa fjöltengi - ég fer út í búð og þurfti að finna fjöltengi með jörð á. Ég hugsa með mér "Yes, hérna geta verið 4 og jörð í öllum og bara frekar ódýr.... kaupi þau og alveg 6 stk" og ekki má gleyma að ég var búin að hringja í yfirmanninn minn einu sinni út af þessum fjöltengjum.
Ég kem til baka á stofuna og tek þetta upp voðalega ánægð og sátt..... Hann horfir á mig " En hvað með snúruna í fjöltengið, hún er ekki á þessum".... Ég fó alveg hjá mér og sagði við hann "þarna fékkstu að sjá ljóshærðuhliðina af mér".....
Ég fór bara aftur út í búð.....:)
Hádeginu elduðum við pasta.... mmmm....svaka kósí!
Dagurinn endaði með bjór og fara yfir stöðuna.... s.s. ALLT ALLT OF SPENNÓ!!

Köben ..... österbro..... MAPT....
Fyrst dagurinn byrjaði mjög heilsusamlega á hlaupatúr! Svo fékk ég og kathrine íbúðina okkar í hádeginu! íbúðin er svo kósí! Við vorum ekki lengi að koma okkur fyrir - enda er það okkar fag! Þrátt fyrir allt of miklu af fötum, húsgögnum og öllu sem fylgir 2 stelpum komst þetta allt á sinn rétta stað og ég mundi segja að þetta væri hin huggulegasta íbúð:)
Mér líður svo vel hérna - við búum Victor bendix gade 1 - ég hef aldrei búið númer 1 áður:) stemming.... hehe! Svo er blómabúð á horninu - risa garður rétt hjá - fakta, nettó og superbest í 15 m fjarlægð - ræktin í 100 m fjærlægð - 15 mín á hjóli í vinnuna..... ÞETTA GETUR EKKI VERIÐ BETRA!!
Ég hlakka til að kynnast köben..... næst á dagskrá er NÝJA vinnan.....

www.mapt.dk
Drulla einhverju hérna inn eða....
Má ekki vera að gera þetta.... enginn tími en samt....
tónlist verkefnisins:
http://www.myspace.com/trifonic
sól og 30 stiga hiti....
Kannski komin timi a sma break og henda inn nokkrum línum hérna inn... bara kannski rétt að segja að ég sé á lífi og sólinn er ennþá hérna!
Mikil pressa er komin í skólanum en þrátt fyrir langa daga og stundum nætur er ég ekki alveg að farast...Þetta tekur bara þann tíma sem þetta tekur og stundum þurfum við að labba lengri leiðinaJ
Í gær var ”mellemkritik”, síðasta þannig í bili...! Frekar spes.... En þetta var mjög skemmtileg milliskil, öðruvísi en ég er vön. Þetta var ekki með kennaranum mínum heldur eigandanum af CEBRA sem er arkítektastofa sem við erum vinna verkefnið með.
Ég var búin að búast við að þetta mundi nú fara eitthvað illa, því það er búið að er ansi erfitt að láta kennaran minn fatta hvað ég er að hugsa og hvað mig langar að gera. Henni finnst ég bara smá skrítinn held ég.....
En ótrúlegt en satt var einhver með mér í þessari krítik, þetta gekk nefnilega fáranlega vel. Komst að því að ég er bara komin ágætilega langt með verkefnið, rauði þráðurinn er til staðar í gegnum verkefnið og konceptið er til staðar!
Ég labbaði bara um á rauðu skýi allt kvöldið í gær;) Þegar það eru rúmir 10 daga eftir er mjög gott að fá að vita að maður er á réttu róli!
Eyddi svo kvöldinu með yndislegum vinkonum! Ég powershoppaði á korteri! Grillaði með stelpunum heima hjá Árný! Fékk mér rauðvín! Fór á fredagsbar! Dansaði af mér rassinnn! Eyddi of mikið af peningum! Gleymdi mér alveg og skemmti mér mega vel! Fór á LeCoq og Kupé! Drakk vont hvítvín! Var komin heim allt of snemma eða kannski allt of snemma...... það var bjart og sól!
Svo vaknaði ég í svitabaði þegar soffía hringdi í mig – hausinn var ekki í góðu standi!!
Eftir MD, 2 ísa, sandinn, 2 sinnum í sjóinn og liggja og gera ekki neitt.... var ég komin með bikínifar;) Við fórum s.s. á ströndina í þynnkunni okkar..... mega nice og mega mikið af fólki!!
Svo er maður bara í skólanum á laugardagskvöld.....
NUNA:
Er ég södd
Ég er þreytt
Langar að fara kúra
Er rauð í framan
Hlusta á Eva Cassidy
Þarf að fara gera form
Hlakka til að fara í sumarfrí
Setninginn: ”Nej, keyptu þér þína eigins pulsu. Það er bara þarna....” (Þóra snillingur)
.jennsína páls
